Litrík dúkristu-vinnustofa!

💛 Aðeins 4 pláss í boði á hverri vinnustofu


Skapandi dagur í sveitinni 💛


Langar þig að taka dag fjarri amstri hversdagsins og sökkva þér niður í skapandi flæði?

Í litlu vinnustofunni minni í Ölfusi hittumst við í fámennum hópi og eigum notalegan dag saman þar sem við leikum okkur með liti, form og dúkristu.

Engin reynsla nauðsynleg.

Bara forvitni og löngun til að skapa.

💛 Innifalið

✔ öll efni

✔ leiðsögn í litlum hópi

✔ hollur hádegisverður

✔ kaffi og te

✔ eigið prentverk til að taka með heim

Hádegisverður úr garðinum þegar uppskera leyfir 🌿

Sumarið er stutt og framboð prentvinnustofudaga takmarkað
þannig að ef þú ætlar að skella þér þá skaltu ekki bíða of lengi með að ákveða dagsetningu og bóka tíma

Einn dagur í skapandi flæði getur skilað þér ótrúlegum árangri


Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu, bara mætir og gerir. Ég leiði þig í gegnum ferlið frá a-ö hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin. Þú ferð heim með undirstöðuþekkingu í dúkristuþrykki sem þú getur
nýtt til að gera myndir, kort, boli, töskur og fl. Ef þú hefur nú þegar unnið í dúkristu þá ferðu heim með meiri þekkingu og öryggi í farteskinu.

  • Hentar bæði byrjendum og lengra komnum

  • Hámark fjórir nemendur í senn

  • Einstaklingsmiðuð kennsla

  • Þú ferð m.a. heim með þitt eigið handþrykkta prentverk

Námskeiðið fer fram í unaðsreit í Ölfusinu. Um 40 mínútna akstur frá Reykjavík. Við byrjum kl. 10 og klárum kl. 17. Þú færð hollan mat og andlega næringu. Við vinnum með liti og tvennslags prenttækni - dúkristu og ecoþrykk. Áhersla á gleði í sköpun.

Verð fyrir heilan dag með hádegismat og öllu efni innifalið

26.900 kr.

Fáir dagar í boði

Hafa samband: info@siggamelros.com

Copyright © 2024  • Melrós